Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi

Sumarstörf hjá ISAL

Góð laun í sumar?

Við bjóðum spennandi tækifæri til þess að vaxa og dafna í sumar á vinnustað sem færir þér gott starfsumhverfi, frábæra vinnufélaga og reynslu sem nýtist þér um ókomin ár.

Störfin eru fjölbreytt, krefjast nákvæmni og mikillar öryggisvitundar. Sameiginlegt markmið er að framleiða hágæða ál í samhentum hópi þar sem öryggi er undirstaða allra verka og kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- , jafnréttis -og umhverfismálum. ​​​​

Hjá Rio Tinto er aðallega unnið á þrískiptum (5 daga vinna/5 daga frí) eða tvískiptum (5 daga vinna/4 daga frí) 8 tíma vöktum en einnig í dagvinnu.

Störf í boði:

- Kerskáli, steypuskáli og skautsmiðja (þrískiptar vaktir)

- Kerskáli (dagvinna)

- Efnisvinnsla (tvískiptar vaktir)

- Rannsóknarstofa, framleiðsluskipulag, bókhald, innkaup, birgðahald og öryggisdeild (unnið í dagvinnu)

- Verkstæði (iðnmenntun eða iðnnám skilyrði, unnið í dagvinnu)

Menntunar- og hæfniskröfur
  • 18 ára og eldri
  • Bílpróf er skilyrði og lyftarapróf er kostur
  • Sterk öryggisvitund
  • Stundvísi, frumkvæði og nákvæmni
  • Þarf að gangast undir læknisskoðun og standast lyfjapróf
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði í mötuneyti
  • Áætlunarferðir til og frá vinnu starfsfólki að kostnaðarlausu
Advertisement published13. January 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags