SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Sumarstörf - Aðstoðarfólk í sálfélagslega teymið á Vogi og Vík

SÁÁ leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í sumarstörf í sálfélagslega teyminu á sjúkrahúsinu Vogi og á meðferðarstöðinni Vík. Um er að ræða 100% dagvinnu.

Frábært tækifæri fyrir fólk í námi, á sviði sálfræði, félagsráðgjafar eða öðru sambærilegu, að fá reynslu af faglegu meðferðarstarfi undir handleiðslu.

Starfið felst meðal annars í þátttöku í meðferðarstarfi sálfélagslega teymisins og stuðningi við inniliggjandi sjúklinga í átt að bata og betra lífi. Hjá SÁÁ er veitt sérhæfð meðferð í öruggu og styðjandi umhverfi. Unnið er í þverfaglegu teymi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, hlýju, virðingu og samvinnu.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Þátttaka í daglegu meðferðarstarfi og teymisvinnu

    • Stuðningur og aðstoð í meðferð inniliggjandi sjúklinga

    • Þátttaka í fræðslu, hópastarfi og einstaklingsviðtölum 

    • Teymisvinna og samvinna við aðrar starfstéttir 

    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Stúdentspróf 
    • Menntun af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði mikill kostur
    • Reynsla af heilbrigðis,- félags- eða þjónustustörfum kostur
    • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og til að vinna í teymi
    • Góð skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða verkefnum
    • Ábyrgðarkennd, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
    Fríðindi í starfi
    • Stytting vinnuvikunnar
    • Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
    • Handleiðsla og góð innleiðing í starfi
    Advertisement published23. February 2026
    Application deadline15. March 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Expert
    Location
    Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.Team work
    Suitable for
    Professions
    Job Tags