Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sumarstarf í endurhæfingardeild - Hrafnista Laugarási

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða áhugasaman einstakling til starfa á endurhæfingardeild heimilisins í 70-100% starf. Leitað er að nemum í iðjuþjálfun, tómstunda- og félagsmálafræði, félagsráðgjöf, þroskaþjálfafræðum eða öðrum skyldum greinum.

Um er að ræða spennandi starf í nýrri endurhæfingardeild sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild. Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni.

Á Hrafnistu Laugarási búa tæplega 200 íbúar og auk þess koma um 50 manns í dagendurhæfingu í hverri viku. Starfið veitir því dýrmæta og fjölbreytta reynslu í lifandi og faglegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða iðjuþjálfa
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Framfylgja þjálfunaráætlun íbúa
  • Leiðbeina, hvetja og aðstoða íbúa við handverk og félagsstarf
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stundar nám í iðjuþjálfun, tómstunda- og félagsmálafræði, þroskaþjálfun, félagsráðgjöf eða öðrum skyldum greinum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Strætóstyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Mötuneyti
  • Fjölskylduvænt og sveigjanlegt starfsumhverfi
Advertisement published27. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Independence
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags