
SÁÁ
SÁÁ er almannasamtök með um sjö þúsund félagsmenn. Samtökin annast rekstur fjögurra meðferðarstofnana þar sem heilbrigðisstarfsmenn veita áfengis- og vímuefnasjúklingum faglega heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Þetta eru sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi og göngudeildirnar í Von, Efstaleiti 7 í Reykjavík og Hofsbót 4 á Akureyri.

Aðstoðarmaður í meðferðarteymi í áfengis- og vímuefnameðferð
Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns í meðferðarteymi á meðferðarstöðinni Vík á Kjalarnesi.
SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra og saman sköpum við allt annað líf. Á Vík er veitt sérhæfð meðferð í öruggu og styðjandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samfellu og hlýlegt andrúmsloft.
Við leitum að ábyrgum, skipulögðum og þjónustuliprum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í daglegu starfi meðferðar og styðja bæði við skjólstæðinga og meðferðarteymi.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem sameinar þætti úr ritara-, umönnunar- og viðveruhlutverki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virk þátttaka í daglegri starfsemi meðferðar
- Stuðningur og upplýsingagjöf til skjólstæðinga
- Umsjón með innritun og útskrift skjólstæðinga
- Umsjón með pöntunum, birgðastöðu og eftirfylgni með rekstrartengdum atriðum
- Undirbúningur gagna og verkefna fyrir meðferð
- Stuðningur við meðferðarteymi
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Starfið krefst nærveru, yfirvegunar og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni í lifandi og krefjandi umhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Menntun af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði kostur
- Reynsla af heilbrigðis,- félags- eða þjónustustörfum
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og til að vinna í teymi
- Góð skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða verkefnum
- Ábyrgðarkennd, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Stytting vinnuvikunnar
- Heilsustyrkur
- Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
- Tækifæri til endurmenntunar og starfsþróunar
Advertisement published20. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Vík Kjalarnesi
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Óska eftir konum á 2-2-3 vaktir 🌸
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona á Ísafirði óskast í skemmtilegt starf
NPA miðstöðin

Sumarstarf í íbúðakjarna
Sumarstörf - Kópavogsbær

Fjölbreytt og skemmtilegt hlutastarf og sumarstörf í búsetukjarna
Búsetukjarnar í Skálahlíð

Aðstoðarmaður óskast í virkt og fjölbreytt daglegt líf!
NPA miðstöðin

Tanntæknir / Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannlæknastofan Brostu

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Aðstoðarmaður á endurhæfingardeild - Hraunvangur
Hrafnista

Dagdvölin Árblik óskar eftir leiðbeinanda
Árblik

Dagdvölin Árblik óskar eftir félagsliða
Árblik

Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær