Tannlæknastofan Brostu
Tannlæknastofan Brostu

Tanntæknir / Aðstoðarmaður tannlæknis

Tannlæknastofan Brostu óskar eftir að ráða fjölhæfan og jákvæðan starfsmann í 80–100% starf.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem ríkir samheldni, traust og góður starfsandi. Á stofunni er góð aðstaða og lögð áhersla á fagmennsku, þjónustulund og jákvæð samskipti.

Helstu verkefni

  • Aðstoð við tannlækna við ýmis störf

  • Samskipti og þjónusta við sjúklinga

  • Sótthreinsun og umsjón með tækjum og áhöldum

  • Önnur tilfallandi verkefni á stofunni, s.s. símsvörun og afgreiðsla

Við leitum að einstaklingum sem

  • Eru skipulagðir og vinna markvisst

  • Hafa jákvætt viðhorf og ríka þjónustulund

  • Geta unnið með mörg verkefni samtímis og haldið yfirsýn

  • Sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Eru traustir og eiga auðvelt með samskipti

Menntun í tanntækni eða reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki skilyrði fyrir réttan aðila.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026. Umsóknir verða þó skoðaðar jafnóðum og þær berast og staðan kann að verða ráðin áður en umsóknarfrestur rennur út.

Advertisement published21. February 2026
Application deadline4. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
Location
Hamraborg 5, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags