

Sumarstörf á Egilsstaðaflugvelli
Við leitum eftir að ráða heilsuhrausta og röska einstaklinga til sumarafleysinga við flugvallarþjónustu á Egilsstaðaflugvelli. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í spennandi og skemmtilegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni eru björgunar- og slökkviþjónusta, viðhald flugvallar og umhverfis hans, viðhald á tækjum ásamt önnur tilfallandi verkefni í samráði við vaktstjóra. Unnið er í vaktarvinnu.
Hæfniskröfur
-
Bílpróf er skilyrði
-
Meirapróf er kostur
-
Reynsla af slökkvistörfum og vinnuvélapróf er kostur
-
Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
-
Viðkomandi þarf að standast læknisskoðun ásamt þrek- og styrktarpróf
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson umdæmisstjóri, [email protected]
Umsóknarfrestur er til 16. mars.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.












