
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkjamála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis-og mannvirkjastofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 160 talsins.

Sumarstarf á húsnæðisviði HMS: Eftirlit og innheimta
Hefur þú áhuga á að starfa í sumar á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.
Við óskum eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf ráðgjafa í innheimtu þar sem verkefnin snúa að erindum vegna greiðsluerfiðleika.
Starfið er tilvalið fyrir námsmenn eða nýútskrifaða til að fá tækifæri til að starfa með frábærum sérfræðingum á ýmsum sviðum og öðlast innsýn og þekkingu á starfsemi HMS.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Úrvinnsla erinda sem berast vegna greiðsluerfiðleika
- Samskipti við viðskiptavini og ráðgjöf
- Skjalavinnsla
- Móttaka viðskiptavina sviðsins og tilfallandi afleysing í móttöku HMS
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf er skilyrði
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur
- Skipulagshæfni og nákvæmni
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Gott vald á íslensku skilyrði
Advertisement published23. February 2026
Application deadline16. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Skrifstofustarf.Tölvukunnátta,Skipulag og Gagnafærsla í Excel. Payday og Monday, Hlutastarf
Next Level Smíði ehf.

Þjónustufulltrúi
Nathan hf.

Útkeyrsla Bílanaust
Bílanaust

Ábyrgðarfulltrúi
Bílaumboðið Askja

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi
Alma íbúðafélag

Akureyri: Hluta- og sumarstörf
Húsasmiðjan

Starfsmaður á skrifstofu
Húnabyggð

Verkefnastjóri hjá Sorgarmiðstöð
Sorgarmiðstöð, félagasamtök

Bókhald
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Sumarstarf í launadeild
Sumarstörf - Kópavogsbær

Patreksfjörður - Fulltrúi á pósthúsi
Pósturinn

Sölumaður í verslun
Búvís ehf