
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkjamála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis-og mannvirkjastofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 160 talsins.

Sumarstarf í þjónustuveri HMS á Sauðárkróki
Hefur þú áhuga á sumarstarfi á nútímalegum vinnustað sem ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.
Sumarstarfsfólk fær tækifæri til að starfar með frábærum sérfræðingum á sínum sviðum og öðlast innsýn og þekkingu á starfsemi HMS.
HMS óskar eftir drífandi og jákvæðum einstaklingum í þjónustuver. Helstu verkefni eru þjónusta til viðskiptavina, símsvörun, afgreiðsla erinda og fjölbreytt skráningar- og bakvinnsluverkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf er skilyrði
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur
- Skipulagshæfni og nákvæmni
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Gott vald á íslensku skilyrði
Advertisement published13. February 2026
Application deadline10. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Bókari óskast
Volcano Trails

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Sumarstarf í móttöku / Summer Reception Agent – Icerental4x4
Icerental4x4

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Sumarstörf 2026
Toyota

Sumarstörf í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
Landhelgisgæsla Íslands

Verkstæðismóttaka
Toyota

Viltu bæta lífsgæði fólks?
Stoð

Starf í fjárhagsbókhaldi Landspítala
Landspítali

Sérfræðingur í þjónustu og innleiðingum
Noona Iceland

Vegglistafólk óskast í Molann miðstöð unga fólksins
Sumarstörf - Kópavogsbær

Vilt þú starfa með okkur í sumar?
VÍS