Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Ábyrgðarfulltrúi

Bílaumboðið Askja leitar að metnaðarfullum og nákvæmum ábyrgðarfulltrúa til starfa. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á umsýslu ábyrgðarmála fyrir allar vörur og þjónustu umboðsaðila. Starfið krefst skipulagshæfni, faglegra vinnubragða og góðra samskipta. Lögð er áhersla á áreiðanleika og skilvirkni í ferlum. Boðið er upp á spennandi tækifæri til að starfa í öflugu teymi hjá traustu og framsæknu fyrirtæki þar sem gæði og þjónusta eru í fyrirrúmi.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks. Virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúa, annast og fylgja eftir ábyrgðakröfum vegna allra vara og þjónustu hjá umboðsaðila  
  • Skipulag og umsýsla gagna í tengslum við ábyrgðakröfur
  • Samskipti við viðurkennda þjónustuaðila Öskju og birgja
  • Upplýsa, fræða og þjálfa viðeigandi aðila til að tryggja rétt vinnubrögð
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi kostur, t.d. á sviði bíliðngreina
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð tölvuþekking og aðlögunarhæfni að fjölbreyttum tölvukerfum
  • Reynsla af Microsoft Dynamics AX kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Af hverju að vinna með okkur?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Advertisement published27. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags