Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Lagerstarfsmaður

Við leitum að drífandi og samviskusömum liðsfélaga til að sinna fjölbreyttum lagerstörfum hjá Öskju. Starfið felur í sér almenn lagerstörf, móttöku og frágang vöru, afgreiðslu pantana til viðskiptavina og akstur. Leitað er að aðila með góða samskiptahæfni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Reynsla af lager- eða þjónustustörfum, lyftarapróf og góð tölvukunnátta eru kostir.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öll almenn lagerstörf
  • Taka upp og ganga frá vörum
  • Afgreiðsla pantana til viðskiptavina
  • Akstur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góða samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynslu af lager- eða þjónustustörfum er kostur
  • Góða tölvukunnáttu
  • Lyftarapróf er kostur
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu bæði í tali og riti
Af hverju að vinna með okkur?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Advertisement published20. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags