Þjórsárskóli
Þjórsárskóli

Störf við Þjórsárskóla fyrir skólaárið 2026-2027

Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stöður kennara við Þjórsárskóla.

Stöður:

  • Sérkennari með deildarstjórn í 100% stöðu (þar af deildarstjórn í 20%) í afleysingu til eins árs.
  • Sérkennari í 100% starf.
  • Textílkennari í 30-40% starf

Hæfnikröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakenn[1]ari / í Med námi.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð, skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á skólaþróun.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðar[1]fullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Frammúrskarandi íslenskukunnátta.

Stöður:

  • Stuðningsfulltrúi 80-100%

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu

Hæfnikröfur

  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð, skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðar[1]fullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
  • Mjög góð íslenskukunnátta.

Þjórsárskóli er heildstæður skóli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi með um 65-70 nemendur í 1.- 10. bekk. Mikil áhersla er á útinám og að þróa skólastarf sem að kemur til móts við nemendur með einstaklingsbundnum hætti.

Skólinn er staðsettur í Árnesi um 30 mínútur frá Selfossi. Skólinn er vel búinn hvað varðar aðstöðu í nýju verknámshúsi.

Við skólann er mikil útikennsla og áhersla á ferðir og ferðalög. Mikilvægt er að umsækjendur séu tilbúnir til að taka þátt í slíku starfi og best ef að viðkomandi hefur mikinn áhuga á slíku.

Við skólann starfar metnaðarfullur mannauður og viljum við bæta við þann góða hóp.

Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og góðir í samskiptum.Fólk, óháð kyni, er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 14. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Finnbogason, skólastjóri, sími 895 2409 netfang : [email protected].

Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum og upplýsingum um fyrri störf sendist í tölvupósti á [email protected]

Advertisement published5. June 2026
Application deadline14. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skólabraut 8, 801 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags