
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg hefur verið starfræktur frá 2. nóvember 1999. Deildirnar eru 6 talsins og heita Álfaberg, Flikruberg, Móberg, Silfurberg, Stuðlaberg og Tröllaberg.
Stefna leikskólans er að veita hverju barni umhyggju, stuðning og öryggi í gegnum þroskandi og heilsueflandi umhverfi.
Markmiðin okkar eru:
Barnið er alltaf í brennidepli.
Skapa umhverfi sem eflir alhliða þroska barnsins.
Nám barnsins fer fram í gegnum leikinn.
Hafa málhvetjandi umhverfi, til að stuðla að eðlilegri færni í íslensku.
Leikskólinn sé heilsueflandi.
Á leikskólanum ríkir jákvæðni, umhyggja, virðing og framsækni.
Börnin öðlast festu og öryggi í leikskólanum.
Allt starf leikskólans sé í nánu samstarfi við foreldra.
Foreldrar séu okkar samstarfsaðilar í umönnun barnanna og við veitum þeim stuðning í foreldrahlutverkinu.

Þroskaþjálfi/Iðjuþjálfi/Sérkennari óskast á Huldubergi
UNGBARNA LEIKSKÓLINN HULDUBERG ÓSKUM EFTIR STARFSMANN Í STÖÐU SÉRKENNARA Í FULLU STARFI frá og með 10. ágúst 2026.
Í Huldubergi eru 102 börn á aldrinum 1 árs til 2ja ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru: Tilfinningalegt öryggi, umhyggja, umönnun, hlýja, góðvild, festa, sveigjanlegt dagskipulag, streitulaust umhverfi og aldurshæfandi örvun.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við barn í daglegum athöfnum, ásamt því að vera hluti af teyminu inni á deild
- Undirbúningur og framkvæmd þjálfunar og vinnustunda
- Teymisvinna með hópstjóra, sérkennsluteymi og stjórnendum
- Samskipti við foreldra og sérfræðinga skólaþjónustu
- Gerð og framkvæmd einstaklingsáætlunar í samstarfi við Sérkennslustjóra og Deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Að hafa áhuga á og þykja vænt um börn og vilja styðja þau til þroska og vaxtar.
Starfsleyfi / Leyfisbréf
- Þroskaþjálfa
- Iðjuþjálfa
- Leikskólakennara
- Sérkennara
Önnur menntun sem nýtist í starfi s.s.
- Leikskólaliði
- Stuðningsfulltrúi
- Sálfræðimenntun
- Uppeldis og menntunarfræði
Reynsla af kennslu ungra barna mikill kostur, sér í lagi innan sérkennslu.
Fríðindi í starfi
- Forgangur barna í leikskóla
- Möguleikar á að sækja námskeið eða lengra nám samhliða starfi t.d. námsleyfi v/leikskólakennaranáms
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Frítt fæði
- Full vinnustytting
Advertisement published4. June 2026
Application deadline26. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Deildarstjóri
Leikskólinn Furuskógur

Störf við Þjórsárskóla fyrir skólaárið 2026-2027
Þjórsárskóli

Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Víðistaðaskóli - Hraunið
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Sérkennari/Þroskaþjálfi í sérdeild einhverfa á miðstigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Þroskaþjálfi eða sérkennari óskast í Laugalandsskóla
Laugalandsskóli

Valhúsaskóli - sérkennari: Fullt starf.
Seltjarnarnesbær

Laus störf kennara við leik- grunn- og tónlistarskóla við Súðavíkurskóla
Súðavíkurhreppur

Ungbarnaleikskóli - leikskólakennari/ kennari: Fullt starf
Seltjarnarnesbær