

Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Laus er til umsóknar staða skólaliða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Staðan er laus sem fyrst. Um fullt starf er að ræða en til greina kemur að ráða í hlutastarf.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 100 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
· Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi.
· Móttaka á skólamat, afgreiðsla og frágangur í eldhúsi og matsal.
· Ræsting og almenn þrif samkvæmt ræstingaráætlun.
· Hreingerning skólahúsnæðis og gólfbón að vori og hausti.
· Umsjón með óskilamunum í skólanum.
· Kynna sér og framfylgja stefnu skólans og Fjarðabyggðar
· Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
· Ábyrgð í starfi og stundvísi.
· Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Góð samvinnu- og samskiptahæfni.
· Jákvæðni og áhugi á að vinna með börnum.
· Frumkvæði í starfi
Icelandic




