Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Stjórnandi skólahljómsveitar Grafarvogs

Stjórnandi Skólahljómsveitar Grafarvogs – spennandi tækifæri til uppbyggingar og forystu í tónlistarmenntun barna.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu stjórnanda Skólahljómsveitar Grafarvogs. Leitað er að leiðtoga með skýra sýn og ástríðu fyrir tónlistarmenntun sem vill taka virkan þátt í að þróa öflugt og skapandi skólastarf.

Reykjavíkurborg rekur fjórar skólahljómsveitir sem starfa í Vesturbæ-Miðbæ, Austurbæ, Árbæ-Breiðholti og Grafarvogi. Hljómsveitirnar heyra undir skóla- og frístundasvið borgarinnar og starfa samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla, eftir menntstefnu borgarinnar og stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík.

Skólahljómsveitir Reykjavíkur gegna lykilhlutverki í að tryggja öllum börnum og ungmennum aðgang að gæða tónlistarnámi – óháð búsetu og félagslegum aðstæðum. Meginmarkmið starfseminnar er að jafna tækifæri til tónlistarnáms og efla hæfni nemenda til að flytja, skapa og njóta tónlistar. Á sjötta hundrað nemendur stunda nám í skólahljómsveitunum og eru þær virkur þátttakandi í menningarlífi borgarinnar, með reglulegum tónleikum og þátttöku í hverfahátíðum og borgarviðburðum.

Skólahljómsveit Grafarvogs, sem hefur aðsetur í Húsaskóla, sinnir kennslu barna á grunnskólaaldri í þremur blásarasveitum þar sem kennt er á öll helstu blásturshljóðfæri, slagverk og rafbassa – allt í anda hefðbundinnar blástursveitaskipunar. Sérstök áhersla er lögð á að styðja nemendur í undirbúningi fyrir virka þátttöku í hljómsveitarstarfi. Hljómsveitin er mikilvægur þátttakandi í listalífi hverfisins og býður fjölbreytt tækifæri til skapandi þróunar og samstarfs.

Við leitum að stjórnanda sem:

  • Hefur metnað til að byggja upp og efla faglegt starf skólahljómsveitarinnar
  • Skilur mikilvægi tónlistar í lífi barna og samfélagsins
  • Býr yfir hæfni til að leiða sveitina inn í næsta kafla með fagmennsku, skýrri framtíðarsýn og samvinnu að leiðarljósi
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Listræn forysta og framkvæmd stefnu Skólahljómsveita Reykjavíkur.
  • Sprotastjórnun hljómsveita.
  • Móta stefnu og áherslur skólahljómsveita í samvinnu við stjórnendur.
  • Ábyrgð á daglegum rekstri, skipulagi, daglegri starfsemi og faglegri þróun sveitarinnar.
  • Ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Skipulag og framkvæmd kennslu í nánu samstarfi við kennara og samstarfsaðila.
  • Þátttaka í samstarfi við skóla, foreldra og samfélagið í kring.
  • Virk þátttaka í þróunarverkefnum skóla- og frístundasviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lokapróf á blásturshljóðfæri eða öðru hljóðfæri innan starfssviðs sveitarinnar.
  • Framhaldsmenntun æskileg.
  • Reynsla af hljómsveitarstjórn, kennslu og vinnu með börnum.
  • Leiðtogahæfni, skipulagshæfileikar og frumkvæði.
  • Þekking á rekstri og fjármálum æskileg.
  • Lipurð í samskiptum og góð tækni- og tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
  • Reykjavíkurkort (menningar- og sundkort)
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published12. May 2025
Application deadline26. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Dalhús 2, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Leadership
Professions
Job Tags