

Lindaskóli óskar eftir tónmenntakennara / sviðslistakennara
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 460 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og tekur þátt í innleiðingu Barnasáttmálans. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.
Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.
· Kennsluréttindi í grunnskóla
· Reynsla af tónmennta og/eða sviðslistakennslu
· Góð þekking á tölvum og upplýsingatækni
· Frumkvæði og metnaður í vinnubrögðum
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi umhverfi
· Stundvísi og samviskusemi









