

Starfsmaður í fasteigna- og aðbúnaðarþjónustu
Ertu fljót/ur að bregðast við, hugsar í lausnum og kannt til verka þegar kemur að almennu viðhaldi... þá langar okkur að kynnast þér!
Hlutverk fasteigna- og aðbúnaðarþjónustu er að tryggja að fasteignir Isavia ANS standist kröfur um öryggi, aðbúnað og snyrtileika.
Við leitum eftir sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi í verkefni við rekstur og viðhald fasteigna. Viðkomandi ber ábyrgð á að fasteignir, viðhald og þjónusta tengd fasteignum sé vel við haldið. Um er að ræða fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf þar sem skipulags- og samskiptahæfileikar fá að njóta sín.Við leitum að liprum liðsfélaga sem getur tekið til hendinni, forgangsraðað hratt og séð tækifækin.
- Viðkomandi þarf jafnframt að taka þátt í að skapa góða liðsheild, stuðla að uppbyggjandi menningu og góðum samskipti.
- Daglegt eftirlit og viðhald á fasteignum fyrirtækisins
- Umhirða lóða, bílastæða og hálkuvarnir
- Aðstoð við undirbúning funda og annarra viðburða
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast bættri aðstöðu starfsfólks og gesta
- Reynsla af almennri viðhaldsvinnu – iðnmenntun er kostur, en ekki skilyrði
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni og geta til að færast hratt milli verkefna
- Skipulag, stundvísi og fagleg vinnubrögð
- Mjög góð samskiptahæfni og vilji til liðsheildar – vinnum sem eitt teymi
- Ökuréttindi er skilyrði – lyftararéttindi eru kostur
- Jákvætt viðhorf, áreiðanleiki og vilji til að læra nýja hluti













