Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Starfsmaður óskast í iðju- og dagþjálfun

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða starfsmann í iðju- og dagþjálfun. Um 80% - 90% starfshlutfall í dagvinnu er að ræða. Notendur iðju- og dagþjálfunar eru bæði í almennum dagþjálfunarrýmum og dagþjálfunarrýmum fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Markmið iðju- og dagþjálfunar er að rjúfa einangrun notenda sem og að efla þá í að taka þátt í daglegum athöfnum, þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður uppá. Áhersla er lögð á að gera einstaklingum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um virkni og einstaklingsíhlutun inn á heimilum hjúkrunarheimilisins
  • Styðja, leiðbeina og hvetja notendur
  • Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi
  • Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir
  • Samskipti við aðstandendur notenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Advertisement published25. July 2025
Application deadline17. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags