Garðabær
Garðabær
Garðabær

Starfsmaður óskast á Miðskóga, heimili fatlaðs fólks

Auglýst er eftir starfsmanni á heimili fatlaðs fólks í Garðabæ, (á Álftanesi). Um er að ræða tímavinnu eða vaktavinnu í 80-100% starfshlutfalli og möguleiki á að byrja strax eða frá 1. apríl 2025. Leitað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingi sem hefur áhuga á málefnum fatlaðs fólks.

Á vinnustaðnum starfa nú 12 manns í mismunandi starfshlutfalli. Í starfshópnum er lögð áhersla á jákvætt og lausnamiðað samstarf. Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum og að jafnaði aðra hverja helgi, eða eina helgi í mánuði.

Starfað er samkvæmt lögum og reglugerðum sem tengjast málefnum fatlaðs fólks. Lögð er sérstök áhersla á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og valdeflingu. Jafnframt eru höfð að leiðarljósi gildi Garðabæjar: Jákvæðni, fagmennska og áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu við athafnir daglegs lífs, innan og utan heimilis
  • Þátttaka í áætlanagerð
  • Þátttaka á starfsmannafundum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur svo sem félagsliða- eða stuðningsfulltrúanám
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samskiptahæfni
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Lágmarksaldur umsækjanda er 20 ára
Advertisement published20. February 2025
Application deadline5. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Automatic testing
Suitable for
Professions
Job Tags