Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Starfsmaður í Viðey dagþjálfun - Laugarás

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða einstakling til starfaá deildina Viðey sem sér um að þjónusta einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma

Meginmarkmið starfsemi deildarinnar er að rjúfa einangrun skjólstæðinga sinna sem og að efla þá í að taka þátt í daglegum athöfnum, þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður.

Áhersla er lögð á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfssemi.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Styðja, leiðbeina og hvetja skjólstæðinga í leik og starfi
  • Samskipti við fjölskyldur skjólstæðinga
  • Taka þátt í utanumhaldi á félagsstarfi, sbr. upplestri, föndri, leikfimi o.þh.
  • Aðstoða við umsjón á vinnustofu, þar sem fer fram ýmis konar handavinna þar sem er t.a.m. prjónað, heklað, málað og teiknað
  • Aðstoða við persónulegt hreinlæti
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni
  • Kostur ef viðkomandi hefur áhuga á handavinnu og hefur áhuga á að efla/hvetja skjólstæðinga í því starfi.
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Reynsla á sambærilegu starfi kostur
  • Kostur ef viðkomandi er með reynslu í myndlist, handavinnu og/eða tónlist.
Advertisement published13. June 2025
Application deadline22. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags