
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Starfsmaður í reikningagerð og innheimtu
Steypustöðin óskar eftir sterkum og talnaglöggum einstaklingi til að ganga til liðs við fjármálasvið fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt: viðkomandi ber ábyrgð á gerð reikninga, bókun innborgana, afstemmingu viðskiptamannabókhalds, innheimtu útistandandi krafna og greiðsluhæfismati viðskiptavina, auk samskipta við innheimtu- og lögheimtuaðila.
Æskilegt er að Viðkomandi hafi reynslu af sambærilegu starfi og vilji starfa á líflegum vinnustað þar sem góður starfsandi er í fyrirrúmi.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð reikninga, bókun innborgana og afstemmingar á viðskiptamannabókhaldi
- Innheimta á útistandandi viðskiptakröfum og greiðsluhæfismat á viðskiptamönnum.
- Samskipti við innheimtustofnanir, milliinnheimtuaðila og lögheimtuaðila.
- Önnur tilfallandi störf og greiningar í samstarfi við fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða viðurkenndur bókari
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Góð almenn tölvukunnátta og góð færni í Excel
- Reynsla og þekking á Navison bókhaldskerfi er kostur
- Samviskusemi og nákvæmni
- Gott vald á íslensku og ensku
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Jákvæðni, góð framkoma og færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Advertisement published30. May 2025
Application deadline5. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHonestyHuman relationsAmbitionIndependenceMeticulousness
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur á fjármálasviði
Reitir

Bókari
RK.raf ehf.

Vefverslun / Markaðsmál
Rafkaup

Bókari - Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla ehf.

Bókhaldsfulltrúi á Akureyri
Aðalskrifstofa - Keahótel ehf.

Móttökufulltrúi á skrifstofu Byggiðnar- Félags byggingamanna
Byggiðn- Félag byggingamanna

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Reyndur bókari
VHE

Sérfræðingur á sviði fagmála og hagsmunagæslu
Félag Sjúkraþjálfara

Starf í bókhaldi og þjónustu
Aðalbókarinn ehf

Starfsmaður í mótttöku, símsvörun o.fl.
Félag iðn- og tæknigreina

Ráðgjafi á sviði kjaramála
Félag iðn- og tæknigreina