Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri

Leitum að starfsmanni á vélaverkstæði á Akureyri. Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, eftirlit og þjónustu við ýmiss konar vélar, tæki og búnað.
Styttri ferðir innan Norðursvæðis tilheyra starfinu og því er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni, bæði á verkstæði og úti á starfsstöðvum.

Við hvetjum einstaklinga með góða verklega og tæknilega færni til að sækja um.
Vegagerðin á Norðursvæði nær frá Holtavörðuheiði að Biskupshálsi á Möðrudalsörævum og upp á miðhálendi. Vegagerðin á Norðursvæði rekur sex þjónustustöðvar sem staðsettar eru á Akureyri, Sauðárkróki, Hvammstanga, Húsavík, Þórshöfn og Vopnafirði, ásamt vélaverkstæði á svæðismiðstöð á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við vélar, tæki og búnað á þjónustustöðvum á Norðursvæði.
  • Viðhald og eftirlit með bílum, búnaði og tækjum Vegagerðarinnar.
  • Uppsetning og viðhald á vegbúnaði og mælitækjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkleg og/eða tæknileg færni sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af viðhaldi, viðgerðum á vélum ökutækjum eða öðrum tæknilegum búnaði.
  • Vélvirki, bifvélavirki eða önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Vinnuvélaréttindi, æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni að vinna í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Góð öryggisvitund.
  • Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi.
Advertisement published9. October 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags