Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri

Vegagerðin óskar eftir áreiðanlegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni á Akureyri.

Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsfólk sinnir jafnframt bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar

  • Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega
  • Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða
  • Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða 
  • Ýmis önnur vinna á þjónustustöð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn ökuréttindi skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi æskileg 
  • Meirapróf æskilegt 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp 
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð öryggisvitund
  • Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi
Advertisement published9. October 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags