Vélafl ehf
Vélafl ehf
Vélafl ehf

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls

Hefur þú þekkingu og reynslu af vinnuvélaviðgerðum? Langar þig að starfa með skemmtilegu fólki í krefjandi umhverfi?

Ef svo er, þá erum við að leita að þér!

Vélafl leitar eftir traustu og metnaðarfullu viðgerðarfólki til starfa í þjónustudeild fyrir Hitachi, Hyundai, Bomag, Metso og fleiri þungavinnuvélar.

Við sinnum fjölbreyttum störfum eins og standsetningum, bilanagreiningum og viðgerðum á vinnuvélum og tengdum búnaði. Markmið okkar er að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur og langar að vinna í skemmtilegu umhverfi til að sækja um.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vinnuvélaviðgerðum er nauðsynleg
  • Menntun við hæfi er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Gilt bílpróf
  • Kostur að hafa gild I og J vinnuvélaréttindi fyrir lyftara og vinnuvélar
Fríðindi í starfi

Niðurgreiddur hádegismatur

Við bjóðum upp á
  • Nýlegar þjónustubifreiðar og góða aðstöðu
  • Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er við nýjungar á vinnuvélamarkaði
  • Endurmenntun á vegum birgja
  • Öflugt starfsmannafélag
Advertisement published8. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Rauðhella 11, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TroubleshootingPathCreated with Sketch.Driver's licence
Professions
Job Tags