
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfskraft, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu þar sem unnið er á mismunandi vöktum.
Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða, sveigjanlega þjónustu sem tryggir fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í kringum 11. ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita einstaklingsmiðaðan og persónulegan stuðning við þjónustunotendur í daglegu lífi, bæði innan og utan heimilis.
- Sinna almennum heimilisstörfum.
- Vera góð fyrirmynd í samskiptum og daglegu starfi.
- Styðja við samfélagsþátttöku og aukið sjálfstæði þjónustunotenda.
- Starfið getur verið líkamlega krefjandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tveggja ára nám á framhaldsskólastigi og/eða reynsla sem nýtist í starfi æskilegt.
- Bílpróf og góð íslenskukunnátta.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvætt viðhorf.
- Framtaksemi og frumkvæði í starfi.
- Hæfni til að starfa undir álagi.
- Hæfileikar til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
Fríðindi í starfi
- Frítt er í sundlaugar Kópavogsbæjar fyrir starfsmenn bæjarins.
- Spennandi starf með skemmtilegu fólki.
Advertisement published30. June 2026
Application deadline14. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Austurkór 3b, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Teymisstjóri – 100% starf
Sinnum heimaþjónusta

Háskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum í fjölbreytt og skemmtilegt starf! ✨
NPA miðstöðin

Starfsmaður í frístundaklúbbinn Kópinn
Sveitarfélagið Árborg

Aðstoðarmaður, NPA, óskast í tímabundið ca. 33% hlutastarf
NPA miðstöðin

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Skammtímadvöl fyrir börn
Skammtímadvöl Leirvogstungu

Starfsmaður í Frístundaklúbbinn Kotið
Sveitarfélagið Árborg

Aðstoðarmaður í sjúkra- og iðjuþjálfun - Sóltúni heilbrigðisþjónustu, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun óskast til starfa hjá Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfingu
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Starfsmaður í starf með fötluðu fólki
Skáli búsetuþjónusta og skammtímadvöl