Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsmanni til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk. Óskað er eftir starfsmanni í 100% starf. Vinnutími er 8-16.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Hæfingarstöðin býður uppá dagþjónustu, virkni- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi. Reynsla í vinnu með fólki með fötlun er æskileg.

Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri vinnu. Ýmiss þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda er vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd smíði, keramik og listsköpun af ýmsu tagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þátttaka í faglegu starfi.

Þátttaka í teymisvinnu.

Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við fatlað fólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki.

Stundvísi og samviskusemi.

Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Framtakssemi og jákvæðni í starfi.

Starfið getur verið líkamlega krefjandi.

Góð íslenskukunnátta.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar bæjarins.

Á Dalvegi er 36 stunda vinnuvika.

Boðið er upp á mat þrisvar á dag, leiðbeinendum að kostnaðarlausu.

Skemmtilegt starfsumhverfi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Líney Óladóttir forstöðuþroskaþjálfi á [email protected]

Advertisement published30. June 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.First aidPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags