Hrafnkatla – fjölskylduheimili og búsetuúrræði
Hrafnkatla – fjölskylduheimili og búsetuúrræði
Hrafnkatla – fjölskylduheimili og búsetuúrræði

Starfsfólk óskast í vaktavinnu í búsetuúrræði

Hrafnkatla leitar að ábyrgu starfsfólki til að starfa í vaktavinnu (2-2-3). Vaktirnar eru 12 klst. bæði dagvaktir og næturvaktir frá kl. 08:00 til kl. 20:00 og 20:00 til 08:00.

Hrafnkatla rekur fjölskylduheimili á höfuðborgarsvæðinu fyrir fjögur ungmenni á aldrinum 12-20 ára sem þurfa öruggt, stöðugt og stuðningsríkt heimili – til skemmri eða lengri tíma. Auk þess rekur Hrafnkatla sértækt búsetuúrræði fyrir börn og ungmenni, ásamt því að bjóða upp á margvíslega þjónustu sem miðar að því að skapa öruggt, faglegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn og ungmenni fá stuðning til að þroskast, efla sjálfstæði og byggja upp jákvæð tengsl.

Um er að ræða gefandi starf þar sem lögð er áhersla á að skapa traust, stuðla að jákvæðri daglegri rútínu og efla félagsfærni ungmennanna. Starfsmenn sinna uppeldis- og stuðningshlutverki og felur starfið í sér náið samstarf við börn og ungmenni í þeirra daglega lífi og vinnu eftir tengslamyndandi nálgun.

Reynsla af starfi með börnum eða ungmennum er kostur.

Athuga að aðeins er verið að auglýsa eftir 100% stöðu, ekki hlutastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita ungmennum stuðning, umönnun og uppeldi í daglegu lífi.
  • Stuðla að jákvæðri og stöðugri rútínu. 
  • Annast almenn heimilisstörf, þar á meðal að versla inn, sjá um að keyra og sækja auk þess að halda heimilinu snyrtilegu 
  • Skapa öruggt, hlýlegt og uppbyggilegt umhverfi. 
  • Samstarf við barnavernd, fjölskyldur og aðra fagaðila. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 23 ára og eldri.
  • Menntun sem nýtist í starfi æskileg, má þar nefna félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísindasviði. 
  • Reynsla af vinnu með börnum/ungmennum. 
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og jákvæðni í starfi.
  • Hreint sakavottorð.
Advertisement published28. October 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags