
Marbakki
Leikskólinn Marbakki tók til starfa árið 1986 og er staðsettur á einkar fallegum stað í Sæbólshverfi í Kópavogi. Einkunnarorð Marbakka eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Leikskólinn starfar eftir starfsaðferðum Reggio Emilia en undirstaða þeirra starfsaðferða er lýðræði. Lögð er áhersla á að börnin alist upp við að þau hafi heilmikið um sitt eigið líf að segja, þau hafi bæði rödd og áhrif. Litið er á barnið sem hæfileikaríkt og skapandi og að virkni þess og áhugahvöt sé árangursríkasti drifkrafturinn í námi þess.

Sérgreinastjóri - íslenska
Marbakki auglýsir eftir sérgreinastjóra til að hafa umsjón með og leiða verkefni innan leikskólans sem stuðla að því að efla íslenskukunnáttu nemenda.
Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 99 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Unnið er í anda starfsaðferða Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og stýrir verkefnum sem efla íslenskukunnáttu allra nemenda í Marbakka í samvinnu við stjórnendateymi leikskólans
- Er tengiliður við sérfræðinga og aðra bæði innan leikskólans og utan sem sérstaklega vinna að því að efla íslenskukunnáttu leikskólabarna
- Sér um að gera áætlanir og meta framgang verkefnanna
- Annast leiðbeiningu og ráðgjöf til annars starfsfólks í Marbakka
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsnám í starfstengdri leiðsögn æskilegt
- Skapandi hugsun og metnaður í starfi
- Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni
- Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Advertisement published28. October 2025
Application deadline11. November 2025
Language skills
IcelandicRequired
Location
Marbakkabraut 4, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
AmbitionTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Umsjónarkennari í Salaskóla!
Salaskóli

Deildarstjóri – Leikskólinn Arnarberg
Hafnarfjarðarbær

Kennari óskast í Hörðuvallaskóla
Hörðuvallaskóli

Viltu koma að kenna?
Hörðuvallaskóli

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólakennari á miðstig óskast leikskólinn Áshamar
Framtíðarfólk ehf.

Stapaskóli - Kennari í hönnun og smíði
Reykjanesbær

Forfallakennari óskast
Helgafellsskóli

Sérkennari óskast
Helgafellsskóli

Viltu taka þátt í að byggja upp nýjan leikskóla?
Leikskólinn Sumarhús