Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Umsjónarkennari í Salaskóla!

Vegna forfalla vantar umsjónarkennara á miðstig í Salaskóla.

Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og eru nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa tæplega 100 starfsmenn.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Ráðning þarf að vera sem fyrst og til loka skólaárs.
  • Starfshlutfall getur verið sveigjanlegt en fullt starf æskilegt.
  • Starfið gæti hentað 5. árs kennaranema.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
  • Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
  • Áreiðanleiki og stundvísi.
  • Vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
  • Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.

Nánari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected] eða í síma 441-3200/840-2393.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins. 

Advertisement published31. October 2025
Application deadline7. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Versalir 5, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags