Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps

Starfsfólk í skammtímavist og stuðningsþjónustu

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsfólki í vaktavinnu í skammtímavistun og stuðningsþjónustu á Reykhólum. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi.

Starfshlutfall 50-100% og um er að ræða allar tegundir vakta.

Um framtíðarstörf er að ræða og stöður eru lausar strax eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Aðstoð við þjónustunotendur til sjálfshjálpar og stuðla að þátttöku þeirra í samfélaginu

·       Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs líf og heimilishald

·       Setja sig inn í tjáningarform og sérstakar aðstæður þjónustunotenda

·       Fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan þjónustunotenda og aðstoða við heilsufarslega þætti.

·       Vinnur eftir þjónustuáætlun í samvinnu við þjónustunotendur og yfirmann.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Menntun sem nýtist í starfi er kostur

·       Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

·       Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.

·       Íslenskukunnátta

·       Bílpróf

·       Hreint sakavottorð

Advertisement published30. May 2025
Application deadline13. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Barmahlíð , 380 Reykhólahreppur
Type of work
Professions
Job Tags