

Óska eftir NPA aðstoðarmanneskju í 100% stöðu
Ég er karlmaður á fertugsaldri sem bý í Reykjavík.
Ég óska eftir aðstoðarfólki 20 ára og eldra í NPA teymið mitt.
Starfið felur í sér að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs vegna mænuskaða, m.a. við heimilisstörf, persónulegt hreinlæti og fleira.
Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi.
Ég leita eftir fólki sem er lausnamiðað í breytilegum aðstæðum og gott í mannlegum samskiptum.
Um er að ræða eina 100% stöðu með 12 tíma vöktum, þar sem unnið er viku í senn og svo fylgir frívika. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar, nánari upplýsingar má finna á Kjarasamningar fyrir NPA aðstoðarfólk
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, sem hægt er að lesa nánar um á: NPA miðstöðin
Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum.
Reykleysi á vinnutíma, ágætis Íslenskukunnátta og bílpróf eru skilyrði.
Vinnuaðstæður eru mjög góðar í nýju húsnæði með sérherbergi fyrir starfsmann.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn og viti að hlutverk aðstoðarfólks felst einnig í því að sinna þeim þörfum barna sem foreldrar sinna frá degi til dags, t.d. að sækja í / skutla í leikskóla, fara með þeim út að leika o.s.frv.
Um er að ræða framtíðarstörf sem er laust frá 14. júlí.
Aðstoð við athafni daglegs lífs.






















