

Starfsmaður á heimili fatlaðs fólks
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.
Um er að ræða 70% vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið verslunarmannahelgina. Um tímabundna ráðningu er að ræða til loka desember með hugsanlegri framlengingu ráðningar.
Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
Vera góð fyrirmynd.
Stuðla að sjálfstæði íbúa.
Almenn heimilisstörf.
Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Framtakssemi, frumkvæði og jákvætt viðhorf í starfi.
Almenn ökuréttindi er kostur.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar Kópavogs












