
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Hefur þú áhuga á geðheilbrigðismálum? Spennandi starf á íbúðarkjarna fyrir geðfatlaða
Við á íbúðarkjarnanum við Hallgerðargötu óskum eftir stuðningsráðgjafa í 100% starf frá ágúst 2025. Um er að ræða framtíðarstarf þar sem unnið er á morgun og kvöldvöktum sem og eina til tvær helgar í mánuði. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf þar sem veitt er einstaklingsmiðuð þjónusta.
Megin hlutverk íbúðarkjarnans er að styðja, valdefla og veita íbúum aðstoð til að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf, innan sem utan heimilis með því að auka samfélagsþátttöku líkt og með atvinnu, njóta menningar og félagslífs. Lögð er áhersla á gott vinnuumhverfi, virðingu, samvinnu, heilsueflingu og sveigjanleika í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustunotenda.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfsstæðis og félagslegrar virkni með valdeflingu að leiðarljósi.
- Leiðbeinir og aðstoðar íbúa við heimilishald, læknisheimsóknir og fleira.
- Þátttaka í teymisvinnu ásamt sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustunotendur.
- Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar að kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðarins.
- Styður við þróun og framtíð úrræðisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á geðheilbrigðismálum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði heilbrigðis, mennta- og/eða félagsvísinda.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með geðfötlun kostur.
- Reynsla af umönnun.
- Rík þjónustulund, jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Íslenskukunnátta B1-2 (samkvæmt samevrópskum matsramma um tungumálaviðmið).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Stytting vinnuvikunnar.
- Heilsu – og samgöngustyrkur.
- Matur innifalinn á vöktum.
- Sund- og menningarkort.
- Starf á vegum Reykjavíkurborgar þar sem möguleikarnir eru margir.
Advertisement published20. June 2025
Application deadline1. July 2025
Language skills

Required
Location
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Clean criminal recordPositivityIndependenceFlexibilityCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Verkefnastjóri velferðarþjónustu – Þátttakandi í þróun og árangri
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Við leitum að háskólamenntuðum stuðningsráðgjafa í fullt starf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir hárgreiðslustofu Furugerði 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir hárgreiðslustofu Norðurbrún 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Barnavernd Reykjavíkur - Eftirlit
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Similar jobs (12)

NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Þroskaþjálfar óskast til starfa í félagsþjónustu Sólheima
Sólheimar ses

Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku
Landspítali

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla í ágúst
Arnarskóli

Starfsmaður á heimili fatlaðs fólks
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Við leitum að háskólamenntuðum stuðningsráðgjafa í fullt starf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild/ dagdeild gigtar
Landspítali

Sumarstarf í íbúðarkjarna
Sumarstörf - Kópavogsbær

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið