Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Starf í Drekaheimum - frístund Smáraskóla

Frístundaleiðbeinendur óskast í Drekaheima sem er frístundaheimili Smáraskóla.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal í fallegu umhverfi nálægt íþróttamannvirkjum og fjölbreyttri og fallegri náttúru. Í skólanum er áhersla á teymiskennslu og gott samstarf nemenda og starfsmanna. Einkunnarorð skólans eru; virðing, vöxtur, viska og víðsýni.

Við Smáraskóla er rekið frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk og starfar það samkvæmt stefnu stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístunda- og klúbbastarfs þar sem lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Frístundaheimilið er opið eftir að hefðbundnum skólatíma lýkur á daginn, yfirleitt á bilinu kl. 13:30-17, auk þess að vera opið allan daginn í einhverjum tilfellum þá daga sem ekki er kennsla í skólanum.

Starfslýsing

Frístundaleiðbeinandi starfar í frístund eftir hádegi og tekur þar virkan þátt í daglegu skipulagi og framkvæmd á faglegu starfi og hefur umsjón með ákveðnum verkefnum í samstarfi við forstöðumann frístundar og skólastjóra.

Um er að ræða 30% starf e.h. á mánudögum miðvikudögum og föstudögum

Ráðningartími og starfshlutafall:

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu af vinnu með börnum.

  • Reynsla og áhuga á starfi með börnum.
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Vera skipulagður, geta sýnt sjálfstæði og frumkvæði.
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
  • Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.

Fekari upplýsingar:

Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar um störfin veita Jónína Sveinbjarnardótti forstöðumaður Drekaheima [email protected] eða Börkur Vígþórsson skólastjóri [email protected] eða í síma 4414800

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðnigarvef alfred.is

Advertisement published15. September 2025
Application deadline22. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Professions
Job Tags