Krabbameinsfélag Íslands
Krabbameinsfélag Íslands
Krabbameinsfélag Íslands

Stærsta áskorun lífsins - sálfræðingur

Krabbameinsfélagið óskar eftir að ráða öflugan sálfræðing í hóp metnaðarfullra sérfræðinga sem sinna ráðgjöf og stuðningi við fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Ráðgjafar Krabbameinsfélagsins starfa í þverfaglegu umhverfi hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa og sálfræðinga í Reykjavík og á Akureyri, þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagleg vinnubrögð.

Í starfinu gefst tækifæri til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks sem stendur frammi fyrir einu erfiðasta verkefni lífs síns. Starfið er ótrúlega gefandi og áhugavert fyrir metnaðarfullan sálfræðing sem vill auka við reynslu sína á sviði sálfræðinnar.

Hópurinn sem leitar til Krabbameinsfélagsins er að takast á við hin ýmsu vandamál sem tengjast veikindum eða því að vera aðstandandi. Helstu verkefni fyrir utan stuðningsviðtöl, ráðgjöf og námskeiðshald eru: kvíði (ofsakvíði og fælni), depurð, þunglyndi, sorg, verkir, lágt sjálfsmat og svefnvandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf, fræðsla og stuðningur við fólk með krabbamein og aðstandendur
  • Einstaklingsviðtöl
  • Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk skóla og annarra stofnana sem óska eftir stuðningi í tengslum við krabbamein
  • Meðferðarvinna
  • Námskeiðshald
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem sálfræðingur
  • Reynsla af einstaklingsviðtölum
  • Reynsla af notkun HAM og/eða núvitundar í meðferðarvinnu
  • Þekking og reynsla af að vinna með einstaklingum með langvinna sjúkdóma
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af teymisvinnu
  • Reynsla af störfum með fólki með krabbamein eða aðra langvinna sjúkdóma og aðstandendum þeirra er kostur.
Advertisement published20. November 2024
Application deadline11. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
DanishDanish
Required
Intermediate
Location
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PsychologistPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags