

Spennandi starf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða
Spennandi starf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða, um er að ræða fullt starf eða hlutastarf.
Erum við að leita að þér?
Við leitum eftir drífandi og líflegum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Mjög skemmtilegt og gefandi starfsumhverfi.
Þjónustukjarninn Krókur þjónustar einstaklinga sem eiga við geðrænan vanda að stríða. Veitt er fjölbreytt þjónusta bæði innan og utan starfsstöðvar allan sólarhringinn.
Starfsmenn veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og hjálp til sjálfshjálpar. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018.
Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum).
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.
Umsóknarfrestur er til og með 26.ágúst. Viðkomandi Þyrfti að geta hafið störf í september.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt nokkrum orðum um af hverju þú telur þig hæfa/n í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnes Hekla Árnadóttir, forstöðumaður Áfangaheimilisins á [email protected] Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
Reynsla af starfi með geðfötluðu fólki mikill kostur
Þjónustulund og jákvæðni í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Hreint sakavottorð
Aldursskilyrði 22 ár
Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Bílpróf er nauðsynlegt
Icelandic










