Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Viðburða og virknifulltrúi

Hrafnista óskar eftir að ráða virkni- og viðburðafulltrúa í öflugt endurhæfingarteymi á Hrafnistu Nesvöllum. Um er að ræða nýtt starf innan teymisins, með tækifæri til að móta hlutverkið og taka virkan þátt í uppbyggingu endurhæfingarstarfsins.

Markmið starfsins er að auka þjónustu við íbúa tengt virkni og félagsstarfi á hjúkrunardeildum heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og undirbúningur á viðburðum á Hrafnistu Nesvöllum
  • Halda utan um félagslega virkni á deildum og virkja starfsfólk
  • Hvetja íbúa til virkni og þátttöku með einstaklingsmiðaðri nálgun
  • Ber ábyrgð á framkvæmd og utanumhaldi á Namaste stundum 
  • Annað sem verður til með þróun starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Gott vald á íslensku skilyrði
  • Reynsla af félagsstarfi eða viðburðastýringu kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Öflug sí- og endurmenntun
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námsstyrkja.
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Advertisement published23. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags