

Leiðtogi listasmiðju fyrir fatlað fólk
Vilt þú leiða skapandi listasmiðju þar sem þátttaka, sköpun og mannleg tengsl fá að njóta sín?
Við leitum að einstaklingi með áhuga á listsköpun, mannrækt og valdeflandi starfi með fötluðu fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að þróa og móta listasmiðju í samstarfi við þátttakendur og öflugt samstarfsfólk.
Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofu, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.
Listasmiðjan er lifandi og skapandi vettvangur þar sem fatlað fólk tjáir sig, skapar og þróar færni sína í gegnum leir, textíl og myndlist. Þar eru jafnframt hannaðar og framleiddar fjölbreyttar handverksvörur til sölu. Við leggjum áherslu á virðingu, þátttöku, sköpunargleði og einstaklingsmiðaðan stuðning
- Leiða leirsmiðjuna og uppbyggingu listasmiðjunnar.
- Umsjón með daglegri starfsemi, skipulagi og innkaupum.
- Leiðbeina og styðja þátttakendur í skapandi starfi með áherslu á leir, myndlist og textíl.
- Þróa skapandi verkefni sem efla þátttöku, sjálfstæði og færni.
- Náið samstarf við þátttakendur, deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði leirlistar, listkennslu, þroskaþjálfunar eða sambærilegra greina.
- Sérþekking og reynsla af vinnu með leir er skilyrði.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg.
- Reynsla af textíl, myndlist eða öðrum listgreinum er æskileg.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Hreint sakavottorð samkvæmt lögum og reglum Reykjavíkurborgar.
- 36 stunda vinnuviku
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Aðgangur að sundlaugum, söfnum og bókasöfnum Reykjavíkur
Icelandic










