Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli

Suðurhlíðarskóli óskar eftir þroskaþjálfa

Í Suðurhlíðarskóla eru um 65 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli sem leggur mikla áherslu á þjálfun í félagsfærni og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins.

Við leitum eftir þroskaþjálfa í 60% starfshlutfall.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026

Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn H Theodórsdóttir, skólastjóri í síma 896-5343. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að áætlanagerð, þ.m.t. einstaklingsáætlun og stuðningaáætlun í samráði/samstarfi við kennara, iðjuþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.

  • Vinna með nemanda í námsveri, í skólastofu, í útikennslu og frímínútum.
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, iðjuþjálfa, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.

  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn, setur og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.

  • Annast þjálfun og fræðslu um fatlanir og þroskafrávik til stuðningsfulltrúa og annarra starfsmanna skólans.

  • Veitir foreldrum fatlaðra nemenda ráðgjöf eftir því sem við á.

  • Fræðir nemendur skólans um þroskafrávik og fatlanir eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í þroskaþjálfun eða sambærileg menntun

  • Framúrskarandi íslensku kunnátta

  • Þekking á kennslu- og uppeldisfræði

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót

  • Hreint sakavottorð

  • Mjög góð þekking og kunnátta á tölvubúnað og helstu upplýsinga og tækniforrit.

Advertisement published4. August 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags