Advania
Advania
Advania

Söluráðgjafi viðskiptalausna

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum söluráðgjafa til að styrkja teymið okkar í sölu á Dynamics 365 Business Central, Power Platform og öðrum tengdum lausnum frá Microsoft.

Starfssvið

Starfið felst í söluráðgjöf, kynningum, gerð tilboða og samninga, auk virkra og markvissra samskipta við viðskiptavini. Þekking á helstu hugbúnaðarlausnum Microsoft er kostur og mikilvægt er að viðkomandi hafi mikinn áhuga á upplýsingatækni og stafrænum lausnum.

Þekking og reynsla

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af sölu og/eða þjónustu á viðskiptakerfum/bókhaldskerfum, eins og t.d. Dynamics 365 Business Central, er kostur
  • Hæfni í framkomu og kynningum
  • Gott vald á töluðu og rituðu máli
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sterkt frumkvæði og áhugi á að þróa og rækta ný viðskiptasambönd

Ef þú hefur áhuga á að vinna með öflugar lausnir, nýta hæfileika þína í faglegu umhverfi og taka þátt í því að þróa árangursrík viðskiptasambönd, þá viljum við heyra frá þér.

Advertisement published19. February 2026
Application deadline6. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags