Vinnvinn
Vinnvinn

Söluráðgjafi í gluggum á fyrirtækjasviði

Traust og öflugt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að drífandi og öflugum einstaklingi í starf söluráðgjafa. Viðkomandi verður hluti af sterku teymi sérfræðinga á sínu sviði og fær tækifæri til að setja sitt mark á hópinn.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum til viðskiptavina.
  • Afgreiðsla, tilboðsgerð og eftirfylgni.
  • Samskipti við erlenda og innlenda birgja.
  • Önnur tilfallandi störf.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þekking á byggingaefni og tengdum vörum er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
  • Áhugi á verslun og þjónustu.
  • Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Góð tölvukunnátta, þekking á AX og/ eða teikniforritum er kostur.
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun er kostur.
  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði.


Við bjóðum:

  • Góð laun í boði.
  • Frábær vinnuaðstaða.
  • Heitur matur í hádeginu.
  • Stuðningur við endurmenntun og þróun í starfi.


Umsóknarfrestur er til og með 29. mars næstkomandi.

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Advertisement published20. March 2026
Application deadline29. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Höfuðborgarsvæðið
Type of work
Professions
Job Tags