Áltak
Áltak
Áltak

Sölustjóri Áltaks

Áltak leitar að öflugum sölustjóra til starfa.

Sölustjóri ber ábyrgð á stjórn, þróun og árangri söluteymis Áltaks. Hlutverkið felst í að leiða sölustarf fyrirtækisins, styðja við dagleg verkefni söluráðgjafa, tryggja markvissa markaðstengingu og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.

Sölustjóri fylgist náið með markaði, þróun í vöruframboði og sér um að uppfæra vöruþekkingu og ferla í takt við þarfir og stefnu fyrirtækisins.

Starfið er fjölbreytt og spennandi sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og kraft.

Við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð aldri, kyni og uppruna. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða söluteymið, styðja sölumenn í heimsóknum, eftirfylgni og verkefnum
  • Skipuleggja og forgangsraða heimsóknum, söluverkefnum og söluaðgerðum
  • Tryggja gæði í söluferlum, upplýsingagjöf, framsetningu og þjónustu
  • Stuðla að góðri vöruþekkingu innan söluteymis og halda uppi reglulegri þjálfun
  • Halda utan um lykilviðskiptavini, efla tengsl og þróa ný viðskiptatækifæri
  • Greina markaðstækifæri, fylgjast með markaði og koma með tillögur að úrbótum og vöruþróun
  • Tryggja að söluteymið starfi samkvæmt stefnu, ferlum og markmiðum Áltaks og Fagkaupa
  • Setja markmið, fylgja eftir árangri og skila reglulegum samantektum til stjórnenda
  • Taka þátt í stefnumótun, vörustefnu og kynningarstarfi
  • Eiga gott samband við samstarfsdeildir, birgja og þjónustuaðila
  • Vinna náið með markaðsdeild með birtingar á ljósvakamiðlum, net og samfélagsmiðlum.
  • Vinna náið með vefdeild um þróun og efni á heimasíðu
  • Fara fyrir uppfærslum og framsetningu í sýningarsal
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af teymisstjórnun eða sterk leiðtogafærni
  • Geta til að veita skýra, uppbyggilega og reglulega endurgjöf
  • Styðja vel við teymið og hvetja til árangurs
  • Menntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði, rekstrarfræði, verkfærði, iðnmenntun 

Frumkvæði og drifkraftur

  • Metnaður til að ná árangri og þróa sölustarf fyrirtækisins
  • Frumkvæði til að finna verkefni, bæta ferla og efla eigin þekkingu og teymsins
  • Mikill drifkraftur og sterkur áhugi á markaði og viðskiptum

Skipulag og agað vinnulag

  • Framúrskarandi skipulagshæfni og yfirsýn yfir verkefni, heimsóknir og söluflæði
  • Agi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Geta til að forgangsraða í hröðu og fjölbreyttu umhverfi

Samskiptahæfni og þjónustulund

  • Framúrskarandi mannleg færni og hæfni til að byggja upp traust og langtímasambönd

Sterk þjónustulund og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi viðskiptavina og samstarfsfólks

Markaðs- og vöruskilningur

  • Þekking eða hæfni til að tileinka sér vöruflokka Áltaks (álklæðningar, kerfisloft, hljóðvist, mótalausnir o.fl.)
  • Skilningur á markaði og tækifærum
  • Greiningarhæfni og færni í að sjá og þróa ný viðskiptatækifæri
  • Stuðla að og innleiða nýjar vörur og lausnir/vöruþróun

Lausnamiðuð nálgun

  • Hæfni til að greina þarfir viðskiptavina og koma með skýrar og faglegar lausnir
  • Útsjónarsemi og hugmyndaauðgi

Tæknifærni

  • Gott vald á tölvukerfum og daglegum vinnuforritum
  • Þekking á AutoCAD, CRM og BC er kostur en ekki skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Atvinna hjá sterku og vaxandi fyrirtæki innan byggingariðnaðar
  • Mjög fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast áfram sem sérfræðingur
  • Samkeppnishæf laun og góð starfskjör

Að auki bjóðum við góðan starfsanda, góð teymi og tækifæri til vaxtar. Líkamsræktarstyrkur, niðurgreiddur hádegismatur og öflugt starfsmannafélag.

Advertisement published20. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Fossaleynir 8, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Stockroom workPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.CarpenterPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags