ÓJ&K - Ísam ehf
ÓJ&K - Ísam ehf

Sölumaður í stóreldhúsadeild – Akureyri

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum sölumanni til að sinna sölu og ráðgjöf til stóreldhúsa á Norðurlandi. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, sjálfstæðri vinnu og vill starfa með öflug vörumerki í framsæknu fyrirtæki. Starfsstöð er á Akureyri og um er að ræða fullt starf.

Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heimsóknir til viðskiptavina
  • Sala, þjónusta, ráðgjöf og uppbygging langtímasambanda
  • Tilboðsgerð, pantanir og greining tækifæra
  • Eftirfylgni, kynningar og þátttaka í markaðs- og söluverkefnum
  • Ýmis tilfallandi verkefni tengd starfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Ökuréttindi (skilyrði)
  • Reynsla af sölumennsku og tengsl/ þekking á markaðnum
  • Almenn tölvuþekking
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
Advertisement published16. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Tryggvabraut 16, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags