

Söluráðgjafi í verslun Tengis í Kópavogi
Tengi óskar eftir að ráða árangursdrifinn og metnaðarfullan einstakling í fjölbreytt og spennandi starf í verslun fyrirtækisins í Kópavogi. Um er að ræða söluráðgjafastöðu hjá leiðandi fyrirtæki á sviði hreinlætistækja.
Starfssvið
- Sala og þjónusta til viðskiptavina
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Veitir framúrskarandi þjónustu í takt við gildi og framtíðarstefnu fyrirtækisins
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af sölumennsku er æskileg
- Þekking á hreinlætistækjum er kostur
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
- Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 25 ára aldri
- Góð tölvukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Andri Lindberg sölustjóri Tengis í síma 414-1000
Tengi er stofnað árið 1981 og sérhæfir sig í ráðgjöf og sölu á hreinlætistækjum og pípulagningaefni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Kópavogi en fyrirtækið er einnig með starfsstöðvar á Akureyri og Selfossi.
Hlutverk Tengis er að auðvelda viðskiptavinum val á gæðavörum á sviði hreinlætistækja og lagnaefnis sem studdar eru af framúrskarandi þjónustu. Tengi er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. Tengi er Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo 2025.
Icelandic










