

Sölu- og þjónusturáðgjafi í íþróttadeild
Icewear óskar eftir að ráða til starfa drífandi og metnaðarfullan sölu- og þjónusturáðgjafa í nýja íþróttavöruverslun fyrirtækisins.
Störf sölu- og þjónusturáðgjafa eru fjölbreytt og spennandi og þarf viðkomandi að sinna margvíslegum verkefnum í daglegum rekstri sem og að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og útsjónarsemi.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí en við hvetjum áhugasama til að sækja um strax, þar sem unnið verður úr umsóknum jafn óðum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um Icewear:
Icewear er leiðandi fyrirtæki á útivistarmarkaði og á sögu að rekja allt aftur til ársins 1972.
Vörulína Icewear er stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir börn og fullorðna. Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Icewear leggur ávallt mikið upp úr góðum verðum og góðri þjónustu, enda er útivist fyrir alla.
Icewear hefur nú hafið framleiðslu á sportfatnaði og stefnir á opnun nýrrar verslunar ásamt merkingarþjónustu í ágúst n.k.
Verslanir Icewear eru í dag 35 talsins og eru staðsettar víðs vegar um landið.
Þín útivist - Þín ánægja
Helstu verkefni eru m.a.:
- samskipti og þjónusta við íþróttafélög og aðra viðskiptavini
- söluráðgjöf
- utanumhald og afgreiðsla pantana
- umsjón með merkingum
- samskipti við fyrirtækjasvið
- Reynsla af sambærilegu starfi og/eða íþróttastarfi er mikill kostur
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Frumkvæði og metnaður
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sölumennska og góð þjónustulund
Icelandic










