Bræður & Co ehf.
Bræður & Co ehf.

Sölufulltrúi í verslun - framtíðarstarf

Ertu manneskja sem er áhugasöm um vistvænan og heilbrigðan lífsstíl og viltu taka þátt í fjölskyldurekinni verslun sem leggur áherslu á umhverfisvænar og náttúrulegar vörur?
Vistvæna búðin á Akureyri leitar að jákvæðum, áreiðanlegum og ábyrgum starfsmanni sem er 20 ára eða eldri til að bætast í teymið okkar. Við leggjum mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu þannig rík þjónustulund er skilyrði.

Starfið er hlutastarf/vaktavinna og vinnutími frá 11:00 - 17:00 virka daga og ca þriðja hver helgi frá 12:00 - 15:00, með möguleika á aukinni vinnu. Starfið er 50% vinna.

Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af litlu og fjölskyldureknu teymi sem vinnur að því að bæta heiminn með umhverfisvænum vörum, sendu umsóknina þína til okkar! Við hlökkum til að heyra frá þér! 🌱
Þarf að geta hafið störf í ágúst

Frekari upplýsingar veitir Sigtryggur í tölvupósti:
[email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst í því að: 
- Kynna og selja vörur með faglegum hætti.
- Veita viðskiptavinum framúrskrandi þjónustu og ráðgjöf.
- Afgreiða netpantanir.
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Kröfur: 
- Áhugi og þekking á vistvænum og heilbrigðum lífsstíl og vörum er kostur.
- Gott vald á íslensku er skilyrði, ásamt enskukunnáttu.
- Reynsla af sölu- eða þjónustustörfum er kostur.
- Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Vera orðinn 20 ára

Advertisement published6. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Brekkugata 3, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags