
SPAR
SPAR er alþjóðleg verslanakeðja með yfir 13.500 verslanir í meira en 50 löndum. Á Íslandi eru SPAR-verslanir reknar af Samkaupum og á næstu árum er stefnt að því að breyta Krambúðum, Kjörbúðum og 10–11 verslunum yfir í SPAR. SPAR leggur áherslu á góða þjónustu, ferskvörur og að mæta daglegum þörfum viðskiptavina með fjölbreyttu vöruúrvali og þægilegri verslunarupplifun.

Verslunarstjóri SPAR
SPAR leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra sem hefur brennandi áhuga á kaupmennsku, rekstri og mannlegum samskiptum. Um er að ræða fullt starf.
Verslunarstjóri ber ábyrgð á heildarrekstri verslunar, daglegri stjórnun og uppbyggingu teymis, ásamt því að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og styrkingu vörumerkisins SPAR.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri verslunar, rekstrarniðurstöðum og daglegri starfsemi
- Ábyrgð og umsjón með starfsfólki, þjálfun og uppbyggingu teymis
- Virk þátttaka í kaupmennsku, þar á meðal verðmálum, vöruvali og framboði
- Stuðla að áframhaldandi þróun og uppbyggingu vörumerkisins SPAR
- Tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum
- Ábyrgð á birgðahaldi og lágmörkun rýrnunar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í viðskipta- eða verslunarfræðum mikill kostur
- Marktæk reynsla af stjórnun hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtæki
- Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og reglusemi
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
- Velferðarþjónusta Samkaupa
Advertisement published6. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
No specific language requirements
Location
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsfólk í vöruhús / Warehouse Operator
Alvotech hf

Sölu- og þjónusturáðgjafi í íþróttadeild
ICEWEAR

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Sölustjóri sérverkefna óskast til Sindra, Kópavogi
SINDRI

Lager- og þjónustustarf hlutastarf
Rafha - Kvik

N1 verslun Reyðarfjörður
N1

Afgreiðslustarf 👉 Liðið okkar stækkar!
TRI VERSLUN

Öryggisvörður
Max Security

Sölufulltrúi - BYKO Akureyri
Byko

Akstur og vinna í vöruhúsi
Dropp

Verslunarstarf
Rafvörumarkaðurinn

Hársnyrtir sölustarf
ATC