Parka Lausnir ehf.
Parka Lausnir ehf.

Sölu- og markaðsfulltrúi Tjalda.is

Við leitum að drífandi og sjálfstæðum einstaklingi til þess að taka að sér heildarumsjón með Tjalda.is. Tjalda.is er vefsíða í eigu Parka Lausna þar sem hægt er að fletta upp, fá upplýsingar um og bóka tjaldsvæði víðsvegar um Ísland. Viðkomandi hefur yfirumsjón yfir sölu- og markaðssetningu á vefsíðunni og bókunarkerfi sem þjónustað er af Parka Lausnum. Þetta er fjölbreytt og spennandi starf þar sem viðkomandi fær tækifæri til að móta og þróa vöruna og vörumerkið í nánu samstarfi við eigendur. Starfið hentar þeim vel sem vilja stíga sín fyrstu skref í sjálfstæðum verkefnum og vinnubrögðum að loknu viðeigandi framhaldsnámi. Starfið er tímabundið, 8-12 mánuðir með möguleika á framlengingu á ráðningarsamningi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heildarumsjón með Tjalda.is, sölu, markaðsmálum, vörumerkinu, bókunarkerfi og vefsíðu.

  • Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við rekstraraðila tjaldsvæða um land allt.

  • Vera tengiliður við viðskiptavini, sem nýta bókunarkerfi Parka Lausna.

  • Drífa áfram sölu og markaðssetningu gagnvart mögulegum nýjum viðskiptavinum.

  • Umsjón með vefsíðu, meðal annars þarf viðkomandi að geta séð um minni háttar breytingar og uppfærslur.

  • Greina þarfir og leggja fram tillögur að stærri breytingum og þróun.

  • Eiga og þróa vörumerkið Tjalda.is.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • 20 ára eða eldri

  • Bakgrunnur í viðskiptafræði, hagfræði, markaðsfræði eða sambærilegt nám

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Grunnþekking á vefumsjónarkerfum og markaðstólum er kostur

  • Reynsla eða þekking á hugbúnaðarþróun er kostur

  • Áhugi á útivist, ferðamennsku og íslenskri náttúru er kostur

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi starf hjá vaxandi fyrirtæki

  • Mikið sjálfstæði og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun vörumerkis

  • Laun samkvæmt kjarasamningi, auk árangurstengdra launa

  • Gott og sveigjanlegt starfsumhverfi

Advertisement published28. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kringlan 4-6, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Email marketingPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Website managementPathCreated with Sketch.Business relationsPathCreated with Sketch.Brand management
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags