Byko
Byko
Byko

Söluráðgjafi sérlausna - BYKO Akureyri

Við leitum að öflugum einstaklingi til að sinna starfi söluráðgjafa sérlausna í verslun okkar á Akureyri.

Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu sérlausna á innihurðum, hreinlætistækjum og gólfefnum ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til einstaklinga og/eða verktaka í stærri framkvæmdum.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Við leitum af einstaklingi með:

  • Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Þekkingu á innihurðum, hreinlætistækjum og gólfefnum - kostur
  • Þekkingu á byggingamarkaðnum - kostur
  • Góða tölvukunnáttu
  • Samviskusemi, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Íslensku- og enskukunnáttu - skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tilboðsgerð, sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum til viðskiptavina
  • Eftirfylgni með tilboðum og pöntunum frá upphafi til afhendingar
  • Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
  • Sækja stærri verkefni á starfssvæði verslunarinnar
  • Önnur tilfallandi störf

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Advertisement published21. April 2026
Application deadline3. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags