

Smíðakennari óskast í Kársnesskóla
Kársnesskóli óskar eftir drífandi, kraftmiklum smíðakennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi
Laus er til umsóknar staða smíðakennara. Við leitum að smíðakennara sem hefur brennandi áhuga á smíðakennslu, nýsköpun og hönnun. Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs sem byggður er á góðum gildum en er nú nýr skóli með nemendur í 5. - 10. bekk. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og að allir nemendur nái árangri. Í skólanum eru um 400 nemendur. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur með spjaldtölvur.
Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Smíðakennsla í 5. - 10. bekk
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa góðan skólabrag
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Upplýsingar gefur Sigrún Valdimarsdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected], sími 441-4600/696-0297
Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.












