

Aðstoðarforstöðumanneskja í frístundaheimili
Frístundaheimilið Vinaheimar leitar að aðstoðarforstöðumanneskju í 100% starf. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Frístundaheimilin veita 6-9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frístundastarfs SFS og menntastefnu Reykjavíkurborgar eru höfð að leiðarsljósi.
Hluti starfsins er unninn í samstarfi við grunnskóla, á skólatíma, með það að meginmarkmiði að efla félagsfærni barna. Starfið er ætlað fagmenntuðu fólki sem gefst tækifæri til að taka þátt í að þróa samstarfsverkefni frístundaheimila og grunnskóla.
Frístundamiðstöðin Miðberg rekur 6 frístundaheimili og 4 félagsmiðstöðvar í Breiðholti.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Umsón með daglegri starfsemi frístundaheimils í samvinnu við forstöðumann.
- Skipulagning frístundaheimilsins í samráði við börn og starfsfólk.
- Leiðbeina og taka þátt í starfi með börnum.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
- Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
- Er staðgengill forstöðumanns.
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða mikil starfs-eða stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags-og tómstundastarfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslensku kunnátta í máli og riti.
- Góð enskukunnátta.













